Við í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum bjóðum krökkum að koma á námskeið hjá okkur og fá að upplifa lífið í sveitinni.
Okkar markmið með námskeiðinu er að krakkarnir skemmti sér vel, læri að umgangast dýr og njóti þess að vera í sveitinni.
Það sem verður m.a. gert á námskeiðunum:
- Krökkunum verður kennt að umgangast dýrin og fóðra þau
- Kemba og flétta hestana
- Þeir sem vilja fá að fara á hestbak
- Farið verður í leiki
Fyrir hverja? Börn, 6 ára og eldri.
Tímasetningar sem í boði eru:
Júní
13. – 16. júní, kl. 09:00 – 12:00 eða 13:00-16:00.
20. – 24. júní, kl. 09:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00
27. júní – 1. júlí, kl. 09:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00
Júlí
4. – 8. júlí, kl. 09:00 – 12:00
11. – 15. júlí, kl. 09:00 – 12:00
18. – 22. júlí, kl. 09:00 – 12:00
25. – 29. júlí, kl. 09:00 – 12:00
Ágúst
2. – 5. ágúst, kl. 09:00 – 12:00
8. – 12. ágúst, kl. 09:00 – 12:00
15. – 19. ágúst, kl. 09:00 – 12:00
Verð:
5 daga námskeið – 18.000 kr.
4 daga námskeið 14.400 kr.
5% systkina afsláttur.
Athugið: Krakkarnir eru hvattir til þess að klæða sig eftir veðri þar sem námskeiðið fer mest megnis fram utandyra, við bjóðum ekki upp á mat svo það þarf að taka með sér nesti.
Öll skráning fer fram í gegnum heimasíðu okkar og er tekið 3500 kr. í staðfestingargjald sem endurgreiðist ekki ef afbókað er á námskeiðið.
Ef koma upp einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu á hradastadir@gmail.com eða í síma 776 7087 (Linda) / 770 2361 (Nina)
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!