Söngnámskeið Klifsins eru sérhönnuð hverjum og einum nemanda. Á námskeiðinu er farið yfir grunntækni í söng s.s. öndun, raddbeitingu og túlkun. Hver tími er 30 mínútur í senn og stendur námskeiðið yfir í 10 vikur.
Einkatímar fyrir byrjendur: Kennslan höfðar til þeirra söngvara sem hafa ekki lært söng áður eða hafa æft í tvö ár eða minna. Námskeiðið hentar þeim sem hafa áhuga á læra grunntækni söngs. Kennarinn hjálpar nemanda að velja lög sem hentar rödd nemandans ásamt því að kynna nemanda fyrir fleiri tónlistarstílum ef þess er óskað.
Einkatímar fyrir lengra komna: Eru fyrir þá söngnemendur sem hafa góðan tónlistarbakgrunn eða hafa að baki meira en 2 ár í söngkennslu. Á námskeiðinu er lögð er áhersla á að kenna nemendum góða söngtækni og að nemandi geti beitt þekkingu sinni. Kennari aðstoðar nemendur við að velja lög sem henta raddsviði nemenda en leggur einnig áherslu á samvinnu nemanda og kennara í lagavali.
Einkatímar fyrir 13 ára og yngri: Námskeiðið hentar vel ungum söngfuglum sem hafa gaman af því að koma fram og syngja. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist aukið sjálfstraust í framkomu og túlkun. Á námskeiðinu kynnast nemendur raddtækni og þeim möguleikum sem röddin býður uppá.