Sönghópurinn Gimsteinar hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks kemur saman á ný þar sem allir syngja með sínum hætti. Áherslan verður lögð á sígild íslensk popplög.
Hvenær:
17. febrúar – 7.apríl frá kl. 15:00-17:00.
Hvar: Í húsnæði MSS, Krossmóa 4a.
Kennari: Hjördís Einarsdóttir
Nánari upplýsingar:
Jón Pétursson í síma 848-2436 eða í tölvupósti á netfangið jonkp87@gmail.com
Fullorðinsfræðsla fatlaðra:
Eitt af markmiðum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að fullorðinsfræðsla og símenntun sé aðgengileg öllum Suðurnesjamönnum. Fullorðnir fatlaðir höfðu um tíma ekki sama aðgang og aðrir að fullorðinsfræðslu en í samstarfi við Fjölmennt og aðra þá sem koma að þjónustu við fatlaða hefur MSS verið að vinna í því að bæta þar úr með því að bjóða þessum hóp upp á fjölbreytt námskeið m.a. í lífstíl, matreiðslu, tölvu, íþróttum, söng, myndlist og handverki.