Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem sinna eða hafa hug á að sinna, sölustörfum, markaðsmálum eða að stofna til eigin reksturs. Námið er 440 klukkustundir og mögulegt að meta það til 22 eininga á framhaldsskólastigi.
Markmið að námsmaður:
- Efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa tengd sölu-, markaðs- og rekstrarmálum
- Öðlist hæfni í gerð áætlana í tengslum við sölu- , markaðs- og rekstrarmál og fylgja þeim eftir
- hafi góða innsýn í rekstur fyrirtækja
- Þjálfist í að
-stýra verkefnum
-undirbúa eigin rekstur
-starfa við sölu- og markaðsmál
-stofna einkahlutafélag og gera markaðs-, rekstrar- og viðskipatáætlun fyrir félagið - Öðlist skilning og reynslu á fjölbreyttum verkfærum og verkferlum sem
nýtist honum í starfi
Námsgreinar og áherslur:
- Tölvu- og upplýsingatækni (samþætt gegnum námsleiðina)
- Námstækni og námsdagbók
- Markmiðasetning
- Gerð viðskiptaáætlana (Inngangur)
- Frumkvöðlafræði og fyrirtækjasmiðja
- Áætlanagerð í töflureikni
- Framsögn og framkoma
- Samskipti
- Verslunarreikningur
- Lykiltölur og lausafé
- Sölutækni og viðskiptatengsl
- Verkefnastjórnun
- Samningatækni
- Gerð kynningarefnis
- Almenn markaðsfræði
- Markaðsrannsóknir
- Markaðssetning á netinu
- Markaðssetning og samfélagsmiðlar
- Gerð viðskiptaáætlunar – Lokaverkefni
Námsmat:
Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Kennslufyrirkomulag:
Námið er skipulagt sem dreifinám. Kennt er þrjú síðdegi í viku auk verkefna og fyrirlestra á netinu. Þegar kemur að námsmati er lögð áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður í stað hefðbundinna prófa. Kennt er samkvæmt námskrá viðurkenndri af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Dreifinám er kennt með þeim hætti að hluti náms fer fram í gegnum netið og hluti í skólastofu, þá eru fyrirlestrar, verkefni og efni frá kennurum aðgengilegt á kennslukerfi MSS.
Námsleiðin fer fram kl. 17-20 á kvöldin á þriðjudögum og fimmtudögum. Einnig er þátttakendum boðið upp á stoðtíma í upplýsingatækni á föstudögum þar sem farið verður yfir þema vikunnar. Þar verður einnig farið yfir hvernig fjarnám fer fram.
- Þriðjudagar: staðlotur í húsnæði MSS, Krossmóa 4, Reykjanesbæ
- Fimmtudagar: fjarkennsla með Teams
Allir þátttakendur munu fá MSS netfang og aðgang að Microsoft Office á meðan námið stendur yfir.
Nánari upplýsingar:
Hrannar og Hólmfríður í síma 421-7500 eða á smr@mss.is
Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
Tímabil:
1. febrúar – 16. Desember
Páskafrí: 11. – 15. apríl
Sumarfrí: 20. júní – 12. ágúst