Markmið með náminu er að einstaklingar sem sinna samfélagstúlkun öðlist þá hæfni sem þarf til að sinna skilgreindum viðfangsefnum, samkvæmt hæfnigreiningu starfsins, á árangursríkan hátt og geti þróast í starfi.
Einstaklingar sem sækja námið þurfa að hafa gott vald á íslensku og því tungumáli sem þau túlka.
Námsgreinar og áherslur:
Samfélagstúlkur miðlar munnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins. Helstu áherslur í náminu eru að: undirbúa verkefni og ganga úr skugga um þekkingu á viðfangsefnum, að læra túlkatækni og verklag túlkunar, fjölmenningarfærni, góð samskipti og samvinnu með það að leiðarljósi að undirbúa samfélagstúlka undir starf.
Samfélagstúlkur þarf að:
- vinna að lausnum
- hafa skilning á starfsemi fyrirtækja
- vinna undir álagi og við ólíkar aðstæður
- eiga í góðum samskiptum við viðskiptavininn
- búa yfir natni, nákvæmni og þrautseigju/seiglu
- hafa sjálfsstjórn og sjálfstraust
- stuðla að góðum samskiptum og samstarfi
Námsmat:
Ekki eru lögð fyrir próf í náminu en gert er ráð fyrir verkefnavinnu og 80% mætingaskyldu í staðlotur.
Kennslufyrirkomulag:
Námið er 165 kennslustundir sem eru bundnar í fjar- og staðlotur.
Fjarnám hefst í janúar og líkur í apríl 2022.
*Skipulag verður birt þegar nær dregur.
*Farið verður af stað með námsleiðina þegar lágmarksfjölda þátttakenda hefur verið náð.
Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrk vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar:
Kristín og Sveindís í síma 421-7500 eða á samfelagstulkun@mss.is
Tímabil:
17. janúar – 7. apríl