Viltu læra að hlaða sjálfur skotfærin þín?
Þetta námskeið, í endurhleðslu riffilskota, er tilvalið fyrir einstaklinga og hópa, byrjendur jafnt sem lengra komna. Námskeiðið gefur viðkomandi E-réttindi í skotvopnaleyfi að því loknu.
Námskeiðið er eitt skipti en tímalengd námskeiðsins fer eftir stærð hópsins. Miðað er við að námskeiðið sé tveggja stunda langt fyrir einstaklinga.
Staðsetning: Í Njarðvík, nema um annað sé samið.