Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir frumgreinadeildir Keilis, Bifrastar og H.R.
Auk þess má meta námið sem hluta af bóklegum greinum í iðnnámi. Lokamarkmið Menntastoða er fyrst og fremst að námsmenn auki færni sína í þeim námsþáttum sem kenndir eru þannig að þeir geti tekist á við nám við frumgreinadeild háskóla, þ.e. uppfylli viðmið á þrepi tvö.
Markmið eru að námsmaður:
- þekki þær leiðir sem henta honum til náms
- hafi jákvæð viðhorf gagnvart áframhaldandi námi
- hafi bætt sjálfstraust sitt og aukið færni sína í samskiptum við aðra
- sé fær um að vinna verkefni sjálfstætt og skipulega, afla og miðla upplýsingum með ýmsu móti.
Námsgreinar:
- Íslenska
- Stærðfræði
- Enska
- Upplýsingatækni
- Námstækni
- Danska
- Lokaverkefni
Námsmat: Verkefnaskil, lokapróf og virk þátttaka.
Kennslufyrirkomulag: Fjarnám Menntastoða tekur um 10 mánuði og telur til allt að 55 eininga. Miðað er við lotukennslu og því er eitt fag kennt í einu. Hvert fag hefst á staðlotu sem stendur yfir í tvo daga, föstudag og laugardag. Þessi leið hentar því fólki sem er í vinnu þar sem ekki er um dagskóla að ræða.
Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar
Áslaug Bára í síma 412-5952/421-7500 eða á aslaug@mss.is
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
Verð: 173.000
Tímabil: 14. janúar – 15. desember