Listanámskeið í Fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks sem verður að þessu sinni með páskaþema. Á námskeiðinu ætlum við að skreyta páskagreinar, búa til skreytt páskaegg og súkkulaðiegg.
Hvenær:
Námskeiðið hefst 14. febrúar og lýkur 4. apríl.
Kennt verður á mánudögum kl. 16:00 – 18:00.
Kennarar: Ninna Stefánsdóttir og Pálmi Ketilsson
Nánari upplýsingar:
Jón Pétursson í síma 848-2436 eða í tölvupósti á netfangið jonkp87@gmail.com
Fullorðinsfræðsla fatlaðra:
Eitt af markmiðum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að fullorðinsfræðsla og símenntun sé aðgengileg öllum Suðurnesjamönnum. Fullorðnir fatlaðir höfðu um tíma ekki sama aðgang og aðrir að fullorðinsfræðslu en í samstarfi við Fjölmennt og aðra þá sem koma að þjónustu við fatlaða hefur MSS verið að vinna í því að bæta þar úr með því að bjóða þessum hóp upp á fjölbreytt námskeið m.a. í lífstíl, matreiðslu, tölvu, íþróttum, söng, myndlist og handverki.