HundaAkademían stefnir á að halda hundanámskeið á Klaustri.
Við ætlum að koma til ykkar á Klaustur og halda hundanámskeið utandyra.
Námskeiðið verður sannkallað hrað-námskeið þar sem við hittumst í 3 daga i röð og 2 klst hver tími. Þá förum við yfir helstu hlýðni æfingar sem gagnast ykkur í daglegu lífi sem og grunnur í að æfa áfram hlýðni, veiði, sýningar, hundafimi, spor, nosework og allt annað skemmtilegt.
Við förum meðal annars yfir:
- Slökun, heima við og kringum áreiti eins og hunda/gesti.
- Hlýðni æfingar eins og sitja, liggja, kyrr og ætlum svo að fá þrusu gott innkall.
- Sjálfstjórn og góðar venjur.
- Taumganga og hælganga, og munin þar á milli.
- Spora æfingar og aðrar leiðir til að gefa hundinum andlega örvun.
- Lærum að lesa í merkjamál hunda og skilja þeirra atferli og þarfir.
- Stress hegðun og lausnir við því.
- Fyrirlestrar á netinu sem þið horfið á heima. Þar förum við yfir merkjamál og stress, góðar venjur, jákvæða styrkingu og óæskilega hegðun. Samskipti hunda við börn.
- Gelt og lausnir við því. Innkall og neyðarinnkalls æfingar.
Hægt er að byrja að horfa á fyrirlestrana um leið og þið pantið námskeiðið og vera búin að horfa á allt þegar námskeiðið byrjar. Við mælum með því, þá fáið þið meira út úr þessari helgi.
Þið fáið svo eftirfylgni og aðgang að öllu efni í 3 vikur eftir námskeiðið. Það er þá allir fyrirlestarnir, allar æfingar með hundana auk þess að fá auka æfingar til að prófa heima.
Verð:
Með hund: 35.000kr. per hund.
Hundlaust-pláss: 20.000kr per hund.
3 skipti. Hver tími er í 2 klst. Samtals 6 klst. verklegt + 5 klst. fyrirlestrar á netinu.
Athugið að sum stéttarfélög styrkja hundanámskeið eins og VR og Efling.
Hundlaust pláss:
Hundlaust-pláss virkar þannig að þú mætir án hundsins í hópatíma. Hlustar á okkur og horfir á alla gera æfingar. Þú færð að spyrja og taka þátt eins og hinir sem eru með hunda í tímanum. Þannig færðu allar upplýsingar og æfir svo hundinn heima eftir tímana og tekur upp myndbönd af völdum æfingum og sendir okkur og færð eftirfylgni að ná æfingum í 3 vikur eftir námskeiðið.
Hundlaust-pláss hentar fyrir þá sem eru með hunda sem geta ekki verið í hópanámskeiði með öðrum hundum. Það getur verið hræðsla, mikið gelt, streita, kvíði eða veikindi.
Ef þú ert ekki viss þá hafðu samband við okkur á hunda@hunda.is