Um námskeiðið
Næsta hjólabrettanámskeið, 5 – 13 ára (ekki fastmótað) hefst laugardaginn 5. mars kl. 10-30 – 12:00 og eru í fjóra laugardaga í röð.
Námskeiðin eru fyrir byrjendur og lengra komna en skipt verður í hópa eftir getu.
Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu grunnatriði hjólabretta íþróttarinnar eins og t.d. hvernig á að standa, ýta sér, snúa við, líkamsstaða og Ollie (hoppa) svo fátt eitt sé nefnt. En fyrir þá sem eru lengra komnir verður farið í ögn flóknari hluti eins og t.d. Kickflip, Shuvit og jafnvel 360 flip.
Á námskeiðinu er hjálmaskylda en einnig eru allir hvattir til að koma með þær hlífar sem viðkomandi á. Gott er að eiga hjólabretti en við erum með nokkur lánsbretti sem hægt er að fá lána.
Námskeiðið fer fram í innanhúss aðstöðunni Dugguvogi 8 í Reykjavík og kostar það 13.900 kr. fyrir öll 4 skiptin.
Sjáumst hress!