Á þessu námskeiði er okkar megin markmið að krökkunum líði vel, að þau hafi gaman og að þau fái smá vitneskju um sig sjálf sem persónur.
Námskeiðið verður aldursskipt, annarsvegar 1-3 bekkur og hinsvegar 4-6 bekkur.
Á þessu námskeiði læra krakkarnir:
- Að styrka sjálfsmyndina sína og koma auga á styrkleika
- Að einbeita sér að jákvæðum hugsunum frekar en neikvæðum
- Að efla tilfinningagreind sína
- Að tala við sjálfa sig á fallegan hátt
- Við ræðum kosti þess að gera góðverk og ræðum um vináttu.
- Að hafa meiri stjórn á einbeitingunni sinni
- Að auka ímyndunaraflið sitt
- Öndun og hvernig hún getur haft áhrif á okkur
- Slökun og hugleiðslu
- Að beita líkamanum sínum í léttu jóga
- Og auðvitað leikum við skemmtilega leiki
Leikirnir verða margir og fjölbreytilegir m.a. munum við byggja mini-put golfvöll saman og spila hann, lita og mála listaverk saman, spila actionary og hot potato, Varúlf, búningaleiki og margt fleirra. (Það geta orðið breytingar á leikjunum)
Dagsetningar sem í boði eru:
- 4 – 8 júlí verður fyrir 1-3 bekk
- 18 – 22 júlí verður fyrir 4-6 bekk
- 1 – 5 ágúst verður fyrir 1-3 bekk
- 15 – 19 ágúst verður fyrir 4-6 bekk
Hvert námskeið er samtals 5 dagar og dagarnir eru frá 13:00 – 16:00
Bókanir fara fram á
ragnar@fagvitund.is og í síma 771-1733 en leiðbeinandi er Ragnar Már, yfirumsjón hefur Kristín Snorradóttir.
Athugið að við tökum við skráningum á biðlista ef námskeið er orðið fullt en einungis 8 pláss eru á hverju námskeiði.
Verðið er 19.990 kr og er boðið upp á 10% systkina afslátt.
Hluti ágóðans af þessu námskeiði mun fara í gott málefni (við erum í því ferli að opna styrktarsjóð fyrir þá sem minna mega sín, en þurfa samt aðstoð fjárhagslega og andlega)
Viltu sjá öll námskeiðin sem Fagvitund hefur upp á að bjóða? Ýttu
hér og skoðaðu framboðið.
Hvar og Hvenær
Upphafsdagur: 01/08/2022
Lokadagur: 05/08/2022
Frá: 13:00
Til: 16:00
Staðsetning: Bíldshöfði 14
Bíldshöfði 14, Reykjavík, - 110
fagvitund@fagvitund
Þessi námskeiðshaldari er ekki með fleiri námskeið að svo stöddu.