Þetta námskeið er fyrir alla sem eru búnir með grunnnámskeið hjá okkur í Hundaakademíunni.
Núna leggjum við áherslu á að auka kröfur, verðum úti og innan um hvort annað, sem sagt æfing með truflun.
Gerð er krafa um að sá/sú sem ætlar að þjálfa hundinn á námskeiðinu hafi eða mun horfa á fyrirlestrana sem voru á grunnnámskeiðinu.
Þetta námskeið hentar ekki fyrir mjög stressaða, hrædda eða reaktvía hunda. Ekki viss? Hafðu samband við okkur og við metum þetta saman.
Við förum yfir skemmtilegar æfingar sem styrkja sambandið milli hunds og fólksins hans. Þjálfum hundinn í að hlusta betur til að tryggja öryggi ykkar og þeirra sem þið mætið.
Farið verður m.a. yfir eftirfarandi:
- Að hundurinn fylgi þér betur.
- Athyglisæfingar.
- Áreitisþjálfun.
- Að styrkja hlýðniæfingar eins og sitja, liggja, kyrr og innkall.
- Standa á göngu.
- Nota annað en nammi sem verðlaun.
- Skilyrða (styrkja mjög mikið) öll þau stikkorð sem eiga að virka mjög vel óháð truflun.
- Hælgönga.
Við leggjum ekki mikla áherslu á innkall á þessu námskeiði þar sem við erum með sér námskeið fyrir innkallsæfingar.
Viltu sjá öll námskeiðin sem Hundaakademían hefur upp á að bjóða? Kíktu hér og skoðaðu framboðið.