Að lesa og skrifa á íslensku er námsleið fyrir fullorðna einstaklinga af erlendum uppruna sem er ólæst eða illa læst á latneskt letur.
Námsþættir og áherslur í námi:
Áhersla er á grunnfærni í íslensku og að auka hæfni námsmanna til að lesa og skrifa á íslensku og öðlast öryggi í framburði íslenskra hljóða og orða. Nemendur læra einfaldan grunnorðaforða sem nýtist í daglegu lífi og þjálfa sig í einfaldri setningagerð. Æft er talað mál, skilning, lestur og ritun einfaldra texta og setninga. Tölur, tákn og greinamerki eru einnig þjálfuð í náminu í samblandi við hljóð- og stafa innlögn.
Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru nýttar í náminu og mikil áhersla er á að nýta tölvur, snjalltæki og námsforrit í náminu.
Námsmat:
Einhver heimavinna fylgir náminu, breytileg eftir námsþáttum og einstaklingum. Í lokin er staða nemenda metin.
Kennslufyrirkomulag:
Námsleiðin verður kennd þrjá daga í viku, eftir hádegi.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Nánari upplýsingar:
Kristín og Sveindís, sími 421-7500 eða kristin@mss.is / sveindis@mss.is
Tímabil:
1. febrúar – 13. maí