Persónuvernd
Demía ehf, kt. 500620-1960, („við“, „okkur“ eða „okkar“) rekur
vefsíðuna https://www.demia.is („þjónustuna“). Demía ehf. er ábyrgðaraðili
vefsíðunnar og er hægt að hafa samband við eigendur og starfsmenn Demíu í
gegnum tölvupóstfangið demia@demia.is.
Þessi persónuverndarstefna er gefin út af Demíu og upplýsir þig um
stefnu okkar varðandi söfnun, notkun og birtingu persónuupplýsinga þegar þú
notar þjónustuna.
Okkur er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna og upplýsinga sem
við meðhöndlum. Öll úrvinnsla persónuupplýsinga er í samræmi við lög um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Við munum ekki nota né deila upplýsingum þínum með neinum, nema
með þeim hætti sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu.
Við nýtum persónuupplýsingar þínar til að veita og bæta
þjónustuna. Þú samþykkir söfnun og notkun upplýsinga í samræmi við þessa stefnu
með því að nota þjónustuna. Ef ekki er kveðið á um annað í þessari
persónuverndarstefnu hafa skilmálar sem notaðir eru í persónuverndarstefnunni
sömu merkingu og í skilmálum okkar sem finna má á https://www.demia.is/skilmalar
Söfnun og notkun
upplýsinga
Við notkun þjónustunnar gætir þú verið beðin(n) um að veita okkur
ákveðnar persónugreinanlegar upplýsingar um þig eða börn á þínu forræði.
Megintilgangur vinnslunnar er að nota þessar upplýsingar til að hafa samband
við þig eða til að auðkenna þig og/eða barn þitt. Persónugreinanlegar
upplýsingar geta falið í sér, en takmarkast ekki við, nafn þitt, símanúmer,
kennitölu, heimilisfang eða aðrar upplýsingar („persónuupplýsingar”). Þessar
upplýsingar geta verið geymdar í allt að ár eða eins lengi og nauðsynlegt þykir
í þeim tilgangi sem þær eru ætlaðar. Bókhaldsgögn eru þó geymd eins lengi og
nauðsynlegt þykir samkvæmt lögum. Gætt verður að því að eyða persónuupplýsingum
til samræmis við lög.
Skráningargögn
Við söfnum upplýsingum sem vafri þinn sendir þegar þú heimsækir
þjónustuna („skráningargögn“). Þessi skráningargögn geta falið í sér
upplýsingar eins og IP-tölu þína, tegund vafra, útgáfu vafra, síður
þjónustunnar sem þú heimsækir, tíma og dagsetningu heimsóknar þinnar, þann tíma
sem þú varðir á þessum síðum og önnur talnagögn.
Vefkökur (e.cookies)
Vefkökur eru skrár sem innihalda smávægilegt gagnamagn, sem getur
innihaldið nafnlaust
og einstakt auðkenni. Vefkökur eru sendar og geymdar á harða disknum í tölvunni
þinni.
Við notum vefkökur til að safna upplýsingum um notkun þína á
vefnum. Vefkökurnar er hluti af því að bæta upplifun notenda vefsíðunnar. Þú
getur stillt vafrann þannig að hann hafni öllum vefkökum eða gefi til kynna
þegar vefkökur eru sendar. Ef þú hins vegar hafnar vefkökum gætir þú farið á
mis við suma hluta þjónustu okkar.
Þjónustuveitur
Við gætum notast við fyrirtæki, þriðja aðila og einstaklinga til
að auðvelda og bæta þjónustu okkar, til að veita þjónustu fyrir okkar hönd, til
að inna af hendi þjónustu þar að lútandi eða til að aðstoða okkur við að greina
hvernig þjónusta okkar er notuð.
Þessir þriðju aðilar hafa aðgang að persónuupplýsingum þínum
einvörðungu til að vinna þessi verk fyrir okkar hönd og er þeim óheimilt að
afhenda þær eða nota í nokkrum öðrum tilgangi.
Öryggi
Engin aðferð við að senda gögn um Internetið eða aðferð við
rafræna geymslu er 100% örugg. Þó að við leggjum áherslu á að nota
viðskiptalega viðurkenndar aðferðir við að vernda persónuupplýsingar þínar
getum við ekki ábyrgst algjört öryggi þeirra. Ef um öryggisbrest við
meðferð persónuupplýsinga er að ræða skal ábyrgðaraðili (Demíu), án ótilhlýðilegrar
tafar, og, ef mögulegt er, eigi síðar en 72 klst. eftir að hann verður
brestsins var, tilkynna Persónuvernd um brestinn, nema ólíklegt þyki að hann
leiði til áhættu fyrir réttindi og frelsi einstaklinga.
Þú átt rétt á að fá aðgang að og fá að vita hvaða upplýsingar
Demía hefur safnað um þig. Eins getur þú beðið um afrit af þeim gögnum. Þú átt
rétt á að fara fram á að Demía takmarki eða eyði upplýsingum um þig nema í þeim
tilvikum þar sem Demía geymir gögn lögum samkvæmt.
Tenglar á aðrar heimasíður
Þjónusta okkar getur haft að geyma tengla á aðrar síður sem við
stjórnum ekki og berum enga ábyrgð á innihaldi þeirra. Smellir þú á tengil frá
þriðja aðila, verður þér beint á síðu þess þriðja aðila. Við mælum eindregið
með því að þú skoðir persónuverndarstefnu og skilmála hverrar síðu sem þú
heimsækir.
Persónuvernd barna
Þjónusta okkar tekur ekki til nokkurs einstaklings sem er yngri en
13 ára („börn“). Okkur vitanlega söfnum við ekki persónugreinanlegum
upplýsingum frá börnum yngri en 13 ára. Sért þú foreldri eða forráðamaður og
vitir til þess að barn þitt hafi veitt okkur persónuupplýsingar skaltu hafa
samband við okkur. Verðum við þess áskynja að barn yngra en 13 ára hafi veitt
okkur persónuupplýsingar munum við tafarlaust eyða slíkum upplýsingum af vefþjónum
okkar.
Breytingar á þessari persónuverndarstefnu
Við áskilum okkur rétt á að uppfæra persónuverndarstefnu okkar og
ráðleggjum þér að lesa þessa persónuverndarstefnu öðru hvoru til að kanna hvort
breytingar hafi orðið. Breytingar á þessari persónuverndarstefnu taka gildi
þegar þær eru birtar á síðunni okkar.
Hafðu samband
Hafir þú einhverjar spurningar varðandi þessa persónuverndarstefnu
vinsamlegast hafðu samband við okkur á netfanginu demia@demia.is